mind the bollocks
hugleiðingaskrif og hugsanabull
miðvikudagur, október 31, 2007
Joke of the day
I wanna to piss on the table...

Efnisorð:

MFS!
Jæja, ég hef ákveðið að byrja á þessu aftur...þá meina ég að blogga. Búinn að sitja í 2 tíma við tölvuna að búa til nýtt look, það kemur um leið og það er tilbúið. Þessu looki stal ég einhversstaðar tímabundið.

Í dag flutti ég úr Árgötu 3, þar sem ég hef búið síðustu 2 mánuði, og inn til Karenar og Arnars vegna þess að nú á að fara að lappa upp á pleisið. Vona að ég geti samt flutt aftur inn bráðlega. Í gær fór að snjóa rétt eftir hádegi og það var ennþá snjókoma þegar ég fór að sofa þannig að í morgun var kominn ágætis snjór á götuna. Nema þegar ég steig út úr húsi þá var svona 5 stiga hiti og snjórinn reyndist vera pjúra slabb, en málið er að núna er frost og öll bleytan og ógeðið sem var í dag er frosið og færðin á götunum er ultra mega slæm. Sem betur fer er maður í 4x4 jeppa. En ég ætla að halda áfram að fikta í lookinu á síðunni...later dudes.

P.S. Það er söguleg stund í gangi hérna, Greys anatomy var að byrja aftur og Karen er límd við imbann.
Sjæsensie
Nú eru 2 mánuðir síðan ég fluttist á Reyðarfjörð og kominn tími fyrir smá hugleiðingaskrif. Þar sem ég er að vinna akkúrat núnz0r þá ætla ég ekki að skrifa neitt meira.
Fylgist með..

Öddi rokk